Vegna fjölda áskoranna ákváðum við félagarnir að henda í matarblogg sem sýnir að menn þurfa ekki
kunnáttu til þess að elda heldur ríkt hugmyndaflug, Doritos og svartan pipar.
Í kvöld varð kjúklingapasta með rauðum Dára (Doritos) og ostasósu fyrir valinu.
Hráefni
- Heill roðlaus eldaður kjúklingur
- 350gr pasta
- Tilbúin spagettí carbonara sósa úr krukku
- Ostur - venjulegur- sem og fusion ostur
- Frosið hvítlauksbrauð
- Chili krydd
- Svartur pipar
- Rauður Dári eftir smekk
- Skellum pasta í pott og látum það malla
- Brytjum kjúklinginn í munnbita
- Rífum niður slatta af osti
- Þegar búið er að sjóða pastað þá er kjúklingnum og pastanum helt í eldfast mót. Þessu er svo öllu blandað saman við ostasósuna
- Áður en þessu er skellt inn í ofn þá stráum við ostinum yfir og svo Dári settur á kantinn til skrauts.
- Skellum eldfastamótinu inn í ofn við 200 gráður og látið bakast í 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn
- Hvítlauksbrauðið sett inn í ofn og hitað þar til það nær brúnum lit
Þarna tókst okkur félögum að elda einfaldan og góðan rétt án mikillar fyrirhafnar - klárlega kominn á matseðilinn.
Það fer enginn svangur að sofa í Bournemouth.




Glæsilegt hjá ykkur piltar, kann að meta kórónulúkkið :) Hlakka til að fylgjast með!!
ReplyDelete