Tuesday, October 14, 2014

Kjúklingalundir í Dáraraspi




Fokið er í flest skjól.. En við ræðum ekki um það hér.

Kjúklingur í Dáraraspi var það heillin.




Hráefni

        • Kjúklingalundir 410gr
        • Dári
        • Egg x2
        • Svartur pipar
        • Chilli Krydd
        • Dára krydd
        • Frosnar ofn fröllur
        • BBQ sósa
        • Hvítlaukssósa
        • Tómatsósa



  • Hendum fröllum í ofninn og kryddum vel með Dára.
  • Hrærum egg í skál, kryddum vel með svörtum pipar, chilli kryddi og Dára.
  • Veltum kjúklingnum uppúr eggjunum.
  • Skellum kjúklingnum í mulinn Dára og hyljum vel.
  • Kjúklingnum hent á syngjandiheita pönnuna og steikt í gegn.


Eftir að matseldin kláraðist var öllu draslinu hent á borðið og sagt gjörið svo vel.


Máltíðin var ekki eins góð og Fusion frændur höfðu vonast eftir og mælum með því að þessi uppskrift verði látin í friði. Er það okkar einlægi vilji að þessi færsla gleymist fljótt fyrir utan Dára í kryddkvörn sem er geggjað.

Fyrirgefið.


Fusion frændur


#130kgfyrirjól


































Saturday, October 11, 2014

Kjúklingaborgarafusion




Tímarnir breytast og mennirnir með... nánar um það síðar.

Kjúklingaborgarafusion var á matseðlinum í kvöld.



Hráefni
        • Fjórar kjúklingabringur, roðlausar og beinlausar
        • BBQ sósa
        • Rauður Dári
        • Frosnar ofn fröllur
        • Tómatssósa
        • Hvíta sósan
        • Chilli osta sósa
        • Ekkert grænmeti
        • Hamborgarabrauð


  •  Vöknuðum 08.05, sharp - til þess að marinera kjúklinginn í bbq sósu.
  • 12.00 athuga hvernig kjúklingum líður - hræra vel í ílátinu.
  • Kveikt á ofninum og látinn ná 200°.
  • Kjúklingabringunum komið varlega fyrir í eldföstumóti og bbq sósu skvett yfir.
  • Látið malla í solid 30 mínútur.
  • Ofn fröllur hent inní ofn og látið vera þar í sirka 20 mínútur.
  • Hræra reglulega vel í fröllunum.
  • Þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn er hamborgarabrauði fleygt inní örbylgjuofn í 30 sekúndur. 
Þegar allt er tilbúið er kjúklingnum komið fyrir í hamborgarabrauðinu ásamt meðlæti. Dári eftir smekk.

Ótrúlega einfalt og gott fyrir hungrað fólk á öllum aldri :)
























Kveðja Fusion Frændur

#130kgfyrirjól
#lítillímér

Monday, October 6, 2014

Fusion kjúklingalasagne með Dára





Nýr dagur, nýr réttur - það kallar á nýtt blogg.
Fusion frændur hentu í Fusion Kjúklingalasagne með eldrauðum Dára og hrísgrjónum,

Við félagarnir hentum okkur í búðarferð til þess að versla inn en komum að luktum dyrum. Þá voru góð ráð dýr og við skelltum okkur þá í næstu búð.

Komum við heim klyfjaðir pokum enda átti að slá til veislu um kvöldið.




Hrísgrjón
          • Hrísgrjón
          • Vatn

  • Hendum hrísgrjónum í pott og vatn yfir
  • Látum sjóða þar til vatnið er gufað upp
  • Látið standa í 10 mín með loki
Klúðruðum hrísgrjónunum og enduðum með nokkra klístraða hrísgrjónabolta.






Fusion Kjúklingalasagne með eldrauðum Dára

          • Slatti af kjúklingalundum
          • Rjómaostur
          • Salsasósa
          • Chilli ostasósa
          • Rauður Dári
          • Mexíkönsk chilli tómatssósa frá Heinz
          • Venjulegur ostur og fusion ostur
          • Svartur pipar, slatti
          • Chilli krydd, nóg
  • Skerum kjúklinginn í munnbita
  • Steikjum kjúklinginn og kryddum 
  • Smyrjum eldfast mót með rjómaosti og setjum svartan pipar yfir
  • Mulnum Dára stráð yfir mótið jafnt og þétt
  • Slatti af Chilli ostasósu sprautað yfir herlegheitin jafnt og þétt
  • Salsa sósu hellt yfir draslið
  • Kjúklingnum komið fyrir jafnt yfir allt mótið
  • Meiri chilli ostasósu sprautað yfir
  • Endað á því að dreifa osti, venjulegum og fusion yfir allt og kryddað eftir smekk.
  • Skreytt með Dára
  • Hent inní ofn við sirka 200° í 15-20 mínútur.

Borið fram með klístruðum hrísgrjónum og eldrauðum Dára eftir smekk.
Allir matargestir voru mjög ánægðir með matinn og hurfu saddir heim til sín.









Saturday, October 4, 2014

Brunch í Bournemouth





Það rignir í Bournemouth þetta laugardagskvöld, skólinn kominn á fullt skrið og verkefnin hrannast upp. 
Menn eru orðnir litlir í sér, stressaðir en spenntir fyrir leysa þessi krefjandi og spennandi verkefni sem framundan eru. Menn leysa þó ekki verkefni á fastandi maga það er deginum ljósara, hehe. Saddur maður er einbeittur maður.
Þar af leiðandi brugðum við fusion bræður á það að ráð að henda í laufléttan fusion brunch.
Þá spurjið þið ykkur mögulega ,,hvað er nú eiginlega fusion brunch". 
Við skulum nú segja ykkur það.



Beikon&osta Fusion Pönnukökur.
        • Tvær flöskur af Betty Crocker pönnukökumixi.
        • Vatn.
        • Nóg af beikoni.
        • Venjulegur ostur og fusion ostur.

  • Byrjuðum á því að blanda vatni við mixið frá frú Crocker (hristum, hrærum aldrei).
  • Á sama tíma steiktum við beikon þar til það var stökkt og gott.
  • Rifum niður venjulegan sem og fusion ost.
  • Blönduðum því næst öllu saman í flösku og hristum vel.
  • Pönnukökurnar bakaðar ein á fætur annari.



Næst skal þá nefna beikon.

Beikon
        • Fullt af beikoni

  • Beikon steikt á pönnu þar til stökkt og gott.


Því næst er komið að Fusion eggjahræru með Dára.

Fusioneggjahræra m/ rauðum Dára
        • Sex egg
        • Venjulegur ostur & fusion ostur
        • Skvetta af mjólk
        • Salt af hnífsoddi
        • Svartur pipar, slatti
        • Chili krydd, nóg
        • Dári eftir smekk


  • Öll hráefni sett í góða skál og hrært vel og vandlega.
  • Herlegheitin sett á sjóðandi heita pönnu og hrært þar til hræran er orðin klár.
Að lokum er það heimatilbúið fusion hvítlauksbrauð

Heimatilbúið Fusion Hvítlauksbrauð
        • Tvær brauðsneiðar af ódýrustu sort
        • Heimatilbúin hvítlauksolía (uppskrift síðar)
        • Venjulegur ostur & fusion ostur

  • Brauðið steikt uppúr hvítlauksolíu
  • Ostur bræddur

Á þessum tímapunkti eru allir þættir þessa laugardagsbrunch tilbúnir.

Borið fram með hlynsýrópi, Mexíkanskri chilli tómatsósu frá Heinz, Dára eftir smekk og nýkreistum appelsínu safa úr þykkni.








Allir voru mjög sáttir með fusion brunchinn og verður hann endurtekinn fyrr en síðar.
Það verður þá ekki lengra að sinni.

Kveðja Fusion frændur
#130kgfyrirjól



Monday, September 29, 2014

Kjúklingapasta með rauðum Dára




Vegna fjölda áskoranna ákváðum við félagarnir að henda í matarblogg sem sýnir að menn þurfa ekki
kunnáttu til þess að elda heldur ríkt hugmyndaflug, Doritos og svartan pipar.
Í kvöld varð kjúklingapasta með rauðum Dára (Doritos) og ostasósu fyrir valinu.



       Hráefni

            • Heill roðlaus eldaður kjúklingur
            • 350gr pasta
            • Tilbúin spagettí carbonara sósa úr krukku
            • Ostur - venjulegur- sem og fusion ostur
            • Frosið hvítlauksbrauð
            • Chili krydd
            • Svartur pipar
            • Rauður Dári eftir smekk


      • Skellum pasta í pott og látum það malla
      • Brytjum kjúklinginn í munnbita
      • Rífum niður slatta af osti 
      • Þegar búið er að sjóða pastað þá er kjúklingnum og pastanum helt í eldfast mót. Þessu er svo öllu blandað saman við ostasósuna
      • Áður en þessu er skellt inn í ofn þá stráum við ostinum yfir og svo Dári settur á kantinn til skrauts.
      • Skellum eldfastamótinu inn í ofn við 200 gráður og látið bakast í 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn
      • Hvítlauksbrauðið sett inn í ofn og hitað þar til það nær brúnum lit


Þarna tókst okkur félögum að elda einfaldan og góðan rétt án mikillar fyrirhafnar - klárlega kominn á matseðilinn.
Það fer enginn svangur að sofa í Bournemouth.