Fokið er í flest skjól.. En við ræðum ekki um það hér.
Kjúklingur í Dáraraspi var það heillin.
Hráefni
- Kjúklingalundir 410gr
- Dári
- Egg x2
- Svartur pipar
- Chilli Krydd
- Dára krydd
- Frosnar ofn fröllur
- BBQ sósa
- Hvítlaukssósa
- Tómatsósa
- Hendum fröllum í ofninn og kryddum vel með Dára.
- Hrærum egg í skál, kryddum vel með svörtum pipar, chilli kryddi og Dára.
- Veltum kjúklingnum uppúr eggjunum.
- Skellum kjúklingnum í mulinn Dára og hyljum vel.
- Kjúklingnum hent á syngjandiheita pönnuna og steikt í gegn.
Eftir að matseldin kláraðist var öllu draslinu hent á borðið og sagt gjörið svo vel.
Máltíðin var ekki eins góð og Fusion frændur höfðu vonast eftir og mælum með því að þessi uppskrift verði látin í friði. Er það okkar einlægi vilji að þessi færsla gleymist fljótt fyrir utan Dára í kryddkvörn sem er geggjað.
Fyrirgefið.
Fusion frændur
#130kgfyrirjól





No comments:
Post a Comment