Nýr dagur, nýr réttur - það kallar á nýtt blogg.
Fusion frændur hentu í Fusion Kjúklingalasagne með eldrauðum Dára og hrísgrjónum,
Við félagarnir hentum okkur í búðarferð til þess að versla inn en komum að luktum dyrum. Þá voru góð ráð dýr og við skelltum okkur þá í næstu búð.
Komum við heim klyfjaðir pokum enda átti að slá til veislu um kvöldið.
Hrísgrjón
- Hrísgrjón
- Vatn
- Hendum hrísgrjónum í pott og vatn yfir
- Látum sjóða þar til vatnið er gufað upp
- Látið standa í 10 mín með loki
Klúðruðum hrísgrjónunum og enduðum með nokkra klístraða hrísgrjónabolta.
Fusion Kjúklingalasagne með eldrauðum Dára
- Slatti af kjúklingalundum
- Rjómaostur
- Salsasósa
- Chilli ostasósa
- Rauður Dári
- Mexíkönsk chilli tómatssósa frá Heinz
- Venjulegur ostur og fusion ostur
- Svartur pipar, slatti
- Chilli krydd, nóg
- Skerum kjúklinginn í munnbita
- Steikjum kjúklinginn og kryddum
- Smyrjum eldfast mót með rjómaosti og setjum svartan pipar yfir
- Mulnum Dára stráð yfir mótið jafnt og þétt
- Slatti af Chilli ostasósu sprautað yfir herlegheitin jafnt og þétt
- Salsa sósu hellt yfir draslið
- Kjúklingnum komið fyrir jafnt yfir allt mótið
- Meiri chilli ostasósu sprautað yfir
- Endað á því að dreifa osti, venjulegum og fusion yfir allt og kryddað eftir smekk.
- Skreytt með Dára
- Hent inní ofn við sirka 200° í 15-20 mínútur.
Borið fram með klístruðum hrísgrjónum og eldrauðum Dára eftir smekk.
Allir matargestir voru mjög ánægðir með matinn og hurfu saddir heim til sín.
.jpg)





No comments:
Post a Comment