Það rignir í Bournemouth þetta laugardagskvöld, skólinn kominn á fullt skrið og verkefnin hrannast upp.
Menn eru orðnir litlir í sér, stressaðir en spenntir fyrir leysa þessi krefjandi og spennandi verkefni sem framundan eru. Menn leysa þó ekki verkefni á fastandi maga það er deginum ljósara, hehe. Saddur maður er einbeittur maður.
Þar af leiðandi brugðum við fusion bræður á það að ráð að henda í laufléttan fusion brunch.
Þá spurjið þið ykkur mögulega ,,hvað er nú eiginlega fusion brunch".
Við skulum nú segja ykkur það.
Beikon&osta Fusion Pönnukökur.
- Tvær flöskur af Betty Crocker pönnukökumixi.
- Vatn.
- Nóg af beikoni.
- Venjulegur ostur og fusion ostur.
- Byrjuðum á því að blanda vatni við mixið frá frú Crocker (hristum, hrærum aldrei).
- Á sama tíma steiktum við beikon þar til það var stökkt og gott.
- Rifum niður venjulegan sem og fusion ost.
- Blönduðum því næst öllu saman í flösku og hristum vel.
- Pönnukökurnar bakaðar ein á fætur annari.
Næst skal þá nefna beikon.
Beikon
- Beikon steikt á pönnu þar til stökkt og gott.
Því næst er komið að Fusion eggjahræru með Dára.
Fusioneggjahræra m/ rauðum Dára
- Sex egg
- Venjulegur ostur & fusion ostur
- Skvetta af mjólk
- Salt af hnífsoddi
- Svartur pipar, slatti
- Chili krydd, nóg
- Dári eftir smekk
- Öll hráefni sett í góða skál og hrært vel og vandlega.
- Herlegheitin sett á sjóðandi heita pönnu og hrært þar til hræran er orðin klár.
Að lokum er það heimatilbúið fusion hvítlauksbrauð
Heimatilbúið Fusion Hvítlauksbrauð
- Tvær brauðsneiðar af ódýrustu sort
- Heimatilbúin hvítlauksolía (uppskrift síðar)
- Venjulegur ostur & fusion ostur
- Brauðið steikt uppúr hvítlauksolíu
- Ostur bræddur
Á þessum tímapunkti eru allir þættir þessa laugardagsbrunch tilbúnir.
Borið fram með hlynsýrópi, Mexíkanskri chilli tómatsósu frá Heinz, Dára eftir smekk og nýkreistum appelsínu safa úr þykkni.
Allir voru mjög sáttir með fusion brunchinn og verður hann endurtekinn fyrr en síðar.
Það verður þá ekki lengra að sinni.
Kveðja Fusion frændur
#130kgfyrirjól